Almennt skuldabréfalán

Almenn skuldabréf eru gefin út gegn skuldayfirlýsingu, þau geta hvort heldur sem er verið óverðtryggð eða verðtryggð en lögum samkvæmt mega verðtryggð lán ekki vera til skemmri tíma en fimm ára. Skuldabréf getur verið með eða án veðs í fasteign eða bifreið.

Lántaki skal standast greiðslumat Arion banka í þeim tilfellum sem lánsupphæð er yfir tveimur milljónum króna eða ef bankinn óskar þess samkvæmt útlánareglum eða af öðrum ástæðum. Kostnaður við greiðslumat er samkvæmt verðskrá.

Vextir lánsins stjórnast af lánsfyrirkomulagi, tryggingum og greiðsluhæfi lántaka en byggja á kjörvöxtum skuldabréfa sem finna má í gildandi vaxtatöflu hverju sinni.
Forsendur láns
kr.
%
%
mán

Kostnaður
%
kr.
kr.
kr.

Yfirdráttarlán

Yfirdráttarlán hentar vel þeim sem þurfa fremur lága upphæð í stuttan tíma. Lánið er afgreitt með skömmum fyrirvara og veitt til allt að 12 mánaða í senn. Lánið ber ekki eiginlegar afborganir svo þú getur hagað endurgreiðslu eftir þínum þörfum.

Möguleg upphæð lánsins er metin út frá tekjum og greiðslugetu hvers viðskiptavinar fyrir sig. Lán lægra en 2.000.000 er afgreitt í netbanka Arion banka. Ef lánið er hærra en tvær milljónir þarf að framkvæma greiðslumat.*

Yfirdráttarlán bjóðast fjárráða viðskiptavinum, 18 ára og eldri, uppfylli þeir kröfur bankans.

Kostir yfirdráttarláns:

  • Ekkert lántöku-, stimpil- eða uppgreiðslugjald.
  • Þú greiðir bara vexti af þeirri upphæð sem þú nýtir hverju sinni**
  • Þú getur sótt um lánið í netbanka Arion banka- sjá leiðbeiningar. Þú færð skilaboð send í netbankann um leið og búið er að afgreiða umsóknina. 
*Einnig i þeim tilfellum sem bankinn óskar þess samkvæmt útlánareglum eða af öðrum ástæðum. Kostnaður við greiðslumat er samkvæmt verðskrá.
 **Vextir eru greiddir samkvæmt útlánsvöxtum viðkomandi debetreiknings

Reikna lán

kr.
%
dagar

Vextir: