Fasteignakaup eru með stærstu fjárhagsskuldbindingum ævinnar. Ef þú ert í kauphugleiðingum þarftu að spyrja þig margvíslegra spurninga, ekki síst vegna þess að greiðslubyrði íbúðalána hefur mótandi áhrif á lífsstílinn og hversu mikið fé þú munt hafa milli handanna í framtíðinni. Nú er veittur 100% afsláttur af lántökugjaldi og lánað allt að 85% af markaðsvirði við kaup á fyrstu eign.*
Hvort skiptir þig meira máli að eignast íbúðina hraðar eða að greiðslubyrðin sé léttari? Hvað viltu fá út úr kaupunum og hverju er ásættanlegt að fórna?
Þegar kemur að fasteignakaupum veita ráðgjafar Arion banka þér faglega ráðgjöf um kaupferlið og þau lán sem við bjóðum, hvort sem draumafasteignin er fundin eða er rétt handan við hornið.
Hafa ber í huga að fasteignakaupum fylgir ýmiskonar kostnaður. Greiða þarf gjald vegna greiðslumats, þóknun til fasteignasala og lántökugjöld.
*Lán að hámarki 30 milljónir eða 85% af markaðsvirði fasteignar, að lágmarki fjórðungur lánsins þarf að vera óverðtryggður.
Ef þú ert í þeim hugleiðingum að flytja þig um set í stærra eða minna húsnæði vakna margvíslegar spurningar. Hefur markaðurinn breyst frá síðustu fasteignakaupum þínum? En greiðslugeta þín, hefur hún tekið breytingum?
Gott er að byrja á því að fá verðmat á núverandi fasteign, en Arion banki tekur mið af mati fasteignasala.
Sértu að fara að minnka við þig gæti opnast möguleikinn á því að greiða upp gömul lán, sem léttir þar með greiðslubyrði þína til frambúðar. Athugaðu að sumum lánum fylgir uppgreiðsluþóknun.
Ef þú hefur hug á að stækka við þig gæti viðbótarlán við eldra lán verið hentugur valkostur. Sé gamla lánið lægra en 80% af markaðsvirði eignarinnar stendur þér til boða að fá viðbótarlán upp í 80%, sem er hámark þess sem Arion banki lánar til íbúðakaupa. Kannski hentar þér betur að taka nýtt lán, ef vextirnir á eldra láninu eru óhagstæðari en það sem boðið er upp á í dag. Þá gæti endurfjármögnun gamla lánsins verið góður valkostur fyrir þig.
Í öllum útibúum Arion banka eru starfandi fjármálaráðgjafar sem veita ókeypis ráðgjöf og aðstoða þig við að svara þessum spurningum, sem og fleiri.
Hafa ber í huga að fasteignakaupum fylgir ýmiskonar kostnaður. Greiða þarf gjald vegna greiðslumats, þóknun til fasteignasala og lántökugjöld, séu ný lán tekin.
Endurfjármögnun lána getur komið sér vel fyrir þig af ýmsum ástæðum. Lánaumhverfið er kannski hagstæðara nú en það var þegar þú tókst lán, sem gæti skilað sér í lægri vöxtum og afborgununum með endurfjármögnun. Nú er hægt að velja milli verðtryggðra og óverðtryggðra lána, sem stóð ekki til boða á árum áður. Kannski hefur greiðslugeta þín aukist, sem gerir þér kleift að stytta lánstímann og hraða eignamynduninni svo þú komist fyrr í draumaferðina.
Í öllum útibúum Arion banka eru starfandi fjármálaráðgjafar sem veita ókeypis ráðgjöf.
Hafa ber í huga að lántöku fylgir ýmiskonar kostnaður. Greiða þarf m.a. gjald vegna greiðslumats, þinglýsingargjald og lántökugjöld, séu ný lán tekin.
Forsenda þess að fá íbúðalán er að standast greiðslumat. Þegar þú sækir um greiðslumat hjá Arion banka þarftu að skila inn eftirtöldum gögnum.
Úrvinnsla greiðslumats tekur að jafnaði tvo til fimm daga og niðurstaða gildir í sex mánuði.
Ef fyrstu niðurstöður greiðslumats eru neikvæðar þá bjóðum við þér að panta tíma hjá fjármálaráðgjafa Arion banka og fá ráðgjöf varðandi mögulegar lausnir.
Hér getur þú reiknað hver möguleg greiðslugeta þín er. Þetta er ekki greiðslumat en getur gefið þér góða vísbendingu um stöðuna. Því nákvæmari upplýsingar sem þú setur inn því raunhæfari er niðurstaðan. Greiðslumat er síðan framkvæmt í útibúum bankans.
Þú getur sniðið íbúðalánið að þínum þörfum með margvíslegum hætti, svo sem mismunandi lánaformi og mismunandi lánstíma. Þá geturðu stillt greiðslubyrðina þannig að hún henti þér sem best, hvort sem þú vilt hafa eignamyndunina hraða eða greiðslubyrðina léttari.
Arion banki býður upp á íbúðalán til allt að 40 ára, lánað er allt að 80% af markaðsvirði eignarinnar. Lánið er tvískipt og getur annað þeirra numið að hámarki 70% af fasteignamati eignarinnar, en hitt lánið getur brúað bilið upp í allt að 80% af markaðsvirði eignarinnar.
Þá geturðu valið um að borga jafnar afborganir eða jafnar greiðslur af lánum þínum.
Þótt þetta hljómi sem keimlíkir kostir hafa þeir ólíkar afleiðingar og er munurinn vel útskýrður í myndbandinu Jafnar afborganir / Jafnar greiðslur. Lánin geta verið verðtryggð, óverðtryggð eða blanda af hvoru tveggja og er munurinn vel útskýrður í myndbandinu hér fyrir neðan.