Haldinn verður fundur fyrir markaðsaðila þann 9. maí klukkan 8:30 þar sem Stefán Pétursson, bankastjóri, Eggert Þ. Teitsson, fjármálastjóri og Sture Stölen forstöðumaður fjárfestatengsla, munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Fundurinn fer fram á ensku í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 og verður jafnframt streymt beint.
Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér. Þeir sem vilja hringja inn á fundinn og taka þátt með því að leggja fram spurningar þurfa að hringja inn áður en kynningin hefst.
Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com.