Fundur / Streymi fyrir markaðsaðila 9. ágúst kl. 8:30
Haldinn verður fundur fyrir markaðsaðila föstudaginn 9. ágúst klukkan 8:30 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Eggert Teitsson, aðstoðarframkvæmdastjóri fjármálasviðs, og Sture Stölen, forstöðumaður fjárfestatengsla, munu kynna afkomu bankans og svara spurningum þátttakenda. Fundurinn fer fram á ensku í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og verður streymt beint.
Þeir sem hyggjast sækja fundinn eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér.
Þeir sem vilja hringja inn á fundinn og taka þannig þátt með því að leggja fram spurningar þurfa að hringja inn áður en kynningin hefst, sjá eftirfarandi símanúmer:
Ísland: 800 7520
Svíþjóð: +46 850 558 358
Bretland: +44 33 3300 9263
Bandaríkin: +1 83 3526 8381
Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans www.arionbanki.is/IR.
Nánari upplýsingar veita Theodór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, IR@arionbanki.is, s.444 6760 og Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs bankans, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.