Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Til að skapa traust og virðisauka fyrir viðskiptavini er mikil áhersla lögð á að viðhalda þekkingu og hæfni starfsfólks með markvissri endurgjöf, símenntun og starfsþróun. Mikið er lagt upp úr frumkvæði, ábyrgð starfsmanna og krefjandi verkefnum í öflugu og gefandi hópstarfi.
Þeir sem hafa áhuga á að starfa í góðu starfsumhverfi með kraftmiklu fólki eru hvattir til að sækja um starf.
Meðferð umsókna
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar ráðið hefur verið í starfið.
Almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega heldur eru þær geymdar í sex mánuði. Þeim er síðan eytt nema þú uppfærir umsóknina og þar með framlengir gildistíma umsóknar.