Á þitt fyrirtæki heima í Startup Reykjavík?
Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2018.
Sækja umStuðningur við frumkvöðlafyrirtæki og virk þátttaka einkafjármagns í fjárfestingum á frumstigi eru einkenni heilbrigðs frumkvöðlaumhverfis. Arion banki trúir á samband við frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki á viðskiptaforsendum.
Með þátttöku í Startup Reykjavik, samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups, fá tíu teymi:
Startup Reykjavik er hluti af Global Accelerator Network, en í því eru um 90 viðskiptahraðlar í sex heimsálfum.
Arion banki er eigandi Startup Reykjavík en verkefnið er unnið í náinni samvinnu við Icelandic Startups.
Fyrst og fremst að sterku og fjölbreyttu teymi einstaklinga á bak við fyrirtækin sem hafa vilja og getu til þess að hrinda sinni viðskiptahugmynd í framkvæmd. Viðskiptahugmynd sem á gott erindi við skilgreindan markhóp, gjarnan á alþjóðamarkaði. Allir geirar koma til greina.
Horft er á hversu markaðsvæn varan eða þjónustan er og metið hvaða erindi hún á fyrir inn skilgreinda markhóp. Samsetning teymisins á bak við hugmyndina er einnig mikilvæg, þ.e. að nægileg breidd sé í hópnum til þess að hugmyndin geti orðið að veruleika.
Markmið Startup Reykjavik er að skapa umgjörð þar sem athafnafólk nýtur ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum viðskiptatækifærum. Startup Reykjavik verkefnið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi en verkefni sem þessi hafa notið mikilla vinsælda og virðingar víðsvegar um heim af fjárfestum og fyrirtækjum sem eru að stíga sín fyrstu skref.
Svör við öðrum algengum spurningum á vefsíðu Startup Reykjavík.
Ásbjörn Sigurjónsson, Silverberg Technologies
Davíð Örn Símonarson, Zalibuna ehf.
Sesselja Ómarsdóttir, Herberia ehf.
Ýr Þrastardóttir, YZ Creation
Birgir Þór Sigurðsson, Þoran Distillery
Rúnar Júlíusson, framkvæmdastjóri, heilsufar.is
Sveinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri, WhenGone
Arnar Laufdal, framkvæmdastjóri, Cloud Engineering
Kjartan Sverrisson, framkvæmdastjóri, GuitarParty.com
Ingunn Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri, EskiTech.
Níu sprotafyrirtæki voru valin úr hópi umsækjenda og hafa hafið þátttöku í Startup Reykjavík verkefninu. Arion banki leggur fyrirtækjunum til aðstöðu, fjárfestir í þeim og veitir þeim, ásamt samstarfsaðilum, ráðgjöf til að auðvelda þeim að vaxa og dafna.
Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups. Fylgstu með á www.startupreykjavik.com, Facebook.com/Arionbanki og Facebook.com/StartupReykjavik.
Heilsu- og matvælafyrirtæki sem leitar í smiðju forfeðranna eftir æskilegri næringu fyrir nútímamanninn.
Sýndar-fjármálastjóri sem veitir fyrirtækjum aðstoð við stjórnun fjármála með nýtingu gervigreindar.
Leikjafyrirtæki sem vinnur nú að hönnun og þróun á nýjum ævintýrahlutverkaleik.
Hugbúnaður sem tengir saman ferðamenn sem vilja versla við heimamenn, eða verslunarráðgjafa á viðkomandi svæði.
Hugbúnaður sem í krafti fjöldans gerir starfsmönnum ólíkra vinnustaða kleift að panta daglega hádegismat víðs vegar frá og sendir á staðinn.
Tölvuleikjastúdíó sem leggur áherslu á að gera skemmtilega, litla og vandaði leiki fyrir PC og leikjatölvur.
Heildstætt einstaklingsmiðað námskerfi sem byggt er á nútímatækni og leiðandi kenningum í sálfræði til að hraða fyrir námi barna.
Fjaðrandi bátasæti sem verndar hryggsúluna í erfiðu sjólagi.
Þróa minniskort sem dulkóðar upptökur á rauntíma. Í upphafi er horft til fjölmiðlafólks sem þarf að vernda sig, sögur sínar og heimildarmenn.
Velkomin á vefsíðu Arion banka. Þessi síða notar kökur (e. cookies) til að auðvelda þér að vafra um vefinn, geyma upplýsingar um stillingar o.fl. Sjá skilmála hér.