Vill fá að hafa rödd í samfélaginu og segja sína skoðun

Vill fá að hafa rödd í samfélaginu og segja sína skoðun

Vill fá að hafa rödd í samfélaginu og segja sína skoðun - mynd
Vill fá að hafa rödd í samfélaginu og segja sína skoðun - mynd

Viðtal við fermingarbarnið Ísabellu Jóhannsdóttur,
sundkonu á Akureyri

Ísabella Jóhannsdóttir er sundgarpur og fermingarbarn sem býr ásamt foreldrum sínum, systrum og hundinum Perlu á Akureyri. Ísabella lítur á það sem allstór tímamót að fermast. Hún segist hafa lært eitt og annað í fermingarfræðslunni og telur að ef Jesús væri á lífi í dag og mætti framkvæma eitt kraftaverk þá yrði það einfalt: „Mengun! Hann mundi minnka mengunina í heiminum.“

Ísabella segist ekki vera að safna sér fyrir neinu og raunar ekki langa í neitt sérstakt í fermingargjöf. „Ég á eiginlega allt svo að mig vantar ekki neitt! Það væri gaman að fá pening.“

Heldurðu að þú fáir mikinn pening?

„Það gæti alveg orðið allavega 200.000 kall. Ég ætla að leggja þetta allt inn á reikning og spara.“

Ísabella hyggst nýta sér það að þau fermingarbörn, sem leggja fermingarpeningana inn á sparnaðarreikning eða í sjóði hjá Arion banka, fá vænt mótframlag frá bankanum. Ef Ísabella leggur t.d. 200.000 krónur inn á sparnaðarreikning fær hún 14.500 krónur í mótframlag.

Sjá nánar um mótframlag Arion banka til fermingarbarna

Í Framtíðarhópi Sundsambands Íslands
og vill hafa rödd í samfélaginu

Ísabella kveðst ekki búin að ákveða hvað hún ætlar að verða þegar hún verður stór. „Mig langar að bæta mig í sundinu,“ segir hún. Íþróttaiðkunina tekur hún enda með trompi og æfir sund með Óðni á Akureyri sex sinnum í viku auk þess að stunda reglubundnar styrktaræfingar.

Ísabella byrjaði afar ung að synda og sýndi mjög snemma mikinn metnað bæði þegar kom að því að mæta á æfingar og í keppnum. Hún varð snemma afar fær í sundinu og hefur undanfarin ár verið reglulega í svokölluðum Framtíðarhópi Sundsambands Íslands. Þeir bestu í hverjum árgangi fara tvisvar til þrisvar á ári í sérþjálfun yfir helgi og hlýða á alls konar fyrirlestra um mataræði, hvíld og fleira. Ísabella á því framtíðina fyrir sér í sundíþróttinni.

En hvað langar þig að vinna við?

„Mig langar kannski ekki beint að verða fræg en mig langar að fá að tala mikið og halda ræður – vera í svona þannig vinnu.“ Ísabella segist vilja hafa rödd í samfélaginu og fá að segja sína skoðun. Við efumst ekki um að sú verði líka raunin og óskum henni gæfu og gengis.

 

Fleiri greinar