Fræðsla um netsvik vekur lukku hjá eldri borgurum!
Eins og við öll vitum eru netsvik því miður að færast í aukana. Svikahrappar nota sífellt óprúttnari aðferðir til að hremma fórnarlömb sín.
Því miður er það svo að svikahrappar beina sjónum sínum oft að eldri borgurum með því að senda þeim fölsuð skilaboð sem hafa að markmiði að hafa viðtakandann að féþúfu.
Við hjá Arion banka viljum leggja lóð á vogarskálarnar til að stemma stigu við slíkri glæpastarfsemi.
Þegar fulltrúi frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra kom að máli við okkur í lok síðasta árs og falaðist eftir því að starfsfólk bankans flytti í forvarnarskyni fræðslu fyrir eldri borgara um netsvik og slíkar hættur, stóð ekki á okkur. Við gerðum út af örkinni tvo vaska starfsmenn, þá Egil Fannar Andrésson og Eymar Jansen, og fóru þeir ásamt fulltrúa frá lögregluembættinu á fjóra staði á þremur dögum – Hofsós, Blönduós, Skagaströnd og Hvammstanga. Var gerður góður rómur að því framtaki. Fljótlega í kjölfarið fengum við sambærilegar fyrirspurnir frá ýmsum öðrum hópum og samtökum og höfum við flutt sambærilega fræðslu þónokkrum sinnum á þessu ári.
Fólk þakklátt fyrir að fá góða fræðslu
„Það er gríðarlega mikilvægt að opna umræðuna um netsvik hér á landi þar sem slík tilfelli hafa aukist á undanförnum árum,“ segir Eymar Jansen, sérfræðingur á viðskiptabankasviði hjá Arion. „Fræðsla um netsvik getur haft gríðarlega jákvæð forvarnaráhrif þar sem hún hjálpar fólki að koma auga á netsvik og grípa til réttra aðgerða til að koma í veg fyrir tjón.“
„Við höfum fengið mjög jákvæðar viðtökur í öllum okkar heimsóknum,“ bætir Eymar við. „Yfirleitt er mjög góð mæting og það hefur gengið vel að miðla upplýsingum til viðstaddra. Tilfinningin sem ég hef fengið er þakklæti, enda getur þetta mál reynst flókið ef fólki er ekki kunnugt um það.“
Mikilvægt að fólk þekki mynstrin sem svikararnir nota
„Maður finnur fyrir því hvað þessi kynslóð vill mikið vera með í tækninni en sumir eru smá hræddir við hana,“ segir Adela Björt Birkisdóttir, fulltrúi í sölu og þjónustu. „Þau eru mjög dugleg að koma til okkar eftir fræðsluna, fá aðstoð og deila sínum sögum.“
„Það er líka mjög mikilvægt að þau þekki mynstrin sem svikararnir nota,“ bætir Adela við, „sérstaklega Messenger-svikin þegar svikari notar Facebook-aðgang hjá manneskju sem þau þekkja. Eftir eina kynningu þá kom einmitt til mín eldri kona og sagði að hún hefði unnið í leik á Messenger sem frænka hennar hafi skráð hana í, en hún fékk aldrei peninginn ...“ Algengt sé að svindlararnir beiti slíkum brögðum.
Endilega hafið samband við okkur
Við viljum endilega flytja fræðsluna okkar sem víðast og því eru allar ábendingar um hópa, sem þegið gætu forvarnarfræðslu um netsvik, vel þegnar. Rétt er að taka fram að við höfum veitt fyrrnefndum hópum netsvikafræðsluna þeim að kostnaðarlausu.