Hvað þarftu að hafa í huga við kaup á bíl?
Það kostar sitt að kaupa og reka bíl – og því margborgar sig að ráðast í svolitla heimildarvinnu áður en gengið er frá kaupum og sest undir stýri á nýja farartækinu. Hér koma nokkur hagnýt ráð sem vonandi nýtast í leitinni að draumabílnum.
Hvernig færðu sem mest út úr bílnum?
Ekurðu aðallega innanbæjar eða slær hjartað uppi á hálendinu? Er bíllinn ætlaður einstaklingi eða verða manneskjur af öllum stærðum og gerðum með í för – og kannski gönguskíði í skottinu og reiðhjól uppi á toppi? Mundu að spá vel í notagildi bílsins og tryggja að hann henti í öllum þeim aðstæðum sem upp geta komið.
Hvernig finnurðu rétta bílinn fyrir þig?
Nýja og notaða bíla finnurðu hjá umboðum og söluaðilum víðs vegar um landið og eins á bilasolur.is. Taktu þér tíma í leitina og vandaðu valið.
Hvernig spararðu fyrir bílnum?
Þegar þú hefur greint hvers konar bíll hentar þér best er næsta skref oft að byrja að spara fyrir kaupverðinu. Gott er að setja sér einföld sparnaðarmarkmið og gæta þess að þau séu raunhæf svo að þau náist. Hér má kynna sér ýmis sparnaðarráð.
Það er auðvelt að spara í Arion appinu, þar hefurðu yfirsýn yfir sparnaðinn og sérð hversu hratt þú nálgast markmiðin. Einföld leið er að skrá t.d. reglulegar millifærslur inn á sparnaðarreikning og eins má skrá sig í áskrift að sjóði í Arion appinu.
Hvað ef þú þarft að taka lán fyrir bílnum?
Ef þú þarft að brúa bilið með bílaláni koma ýmsir möguleikar til greina. Við hjá Arion bjóðum til að mynda 50% afslátt af lántökugjaldi þegar þú kaupir rafmagnsbíl. Jafnframt bjóðum við hagstæðari vexti fyrir þá sem kaupa sér bíl sem gengur fyrir 100% endurnýjanlegri orku eða tengitvinnbíl með mengunarstuðili undir 50g CO2/KM.
Tökum dæmi: Segjum að fyrir valinu verði rafmagnsbíl sem kostar, nýr frá umboði, sex milljónir króna. Þú ákveður að taka 50% lán og greiða það upp á fjórum árum. Innborgun í upphafi er þá þrjár milljónir króna, vextir af láninu 11,35% og mánaðarlegar greiðslur af bílnum nema 79.192 krónum.
Hér á vefnum okkar má nota reiknivél til að reikna út greiðslubyrðina eftir gerð bílalánsins.
Hvernig gengurðu úr skugga um að notaður bíll sé í góðu ástandi?
Áður en þú færð lyklana í hendurnar skaltu fá ástandsskoðun (stundum kallað söluskoðun). Við mælum með að láta óháðan þriðja aðila meta ástand bílsins. Í slíkri skoðun eru mikilvægir slithlutir skoðaðir, s.s. bremsur, og metið hvort búast megi við dýrum viðgerðum á næstunni.
Þarf ég að tryggja nýja bílinn minn?
Ökutækjaeigendum er að hluta til skylt að tryggja ökutæki sín, sjálfa sig og farþega sína. Miklir fjármunir liggja í ökutækjum og getur mikill kostnaður hlotist af jafnvel smávægilegustu tjónum ef bílatryggingarnar eru ekki í lagi. Vörður býður víðtækar tryggingar fyrir ökutæki og ferðavagna. Sjá meira hér.
Hvað kostar að reka og eiga bíl?
Við kaup á bíl má svo ekki gleyma rekstrarkostnaðinum sem farartækinu fylgir. Auk reglubundins viðhalds krefst bíllinn eldsneytis eða annarra orkugjafa og allt kostar þetta peninga. Mundu að taka rekstrarkostnaðinn með í reikninginn.
Vonandi nýtist þessi stutta yfirferð þér við val á nýja bílnum! Gangi þér vel.