Hvernig fara íbúðakaup fram?
Þegar greiðslugetan hefur verið könnuð og útborgun tryggð þá er komið að því að finna draumaeignina. Það ferli getur tekið mislangan tíma en mikilvægt er að vanda valið og finna þá eign sem er með flesta þá eiginleika sem leitað er að. Flestir eru með mjög skýrar hugmyndir um hvernig íbúð er leitað að og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla en það er gott að hafa það í huga að það þarf ekki að vera að íbúð finnist sem uppfyllir allar óskir. Við kaup á fyrstu fasteign þarf oft að forgangsraða eiginleikum og velja þá eign sem tikkar í flest boxin ef ekki finnst eign á réttu verði sem uppfyllir allt saman.
Þegar eignin er fundin fer ferli af stað sem fasteignasalinn leiðir kaupendur í gegnum. Með aðstoð fasteignasala gerir kaupandi formlegt kauptilboð í eignina en kauptilboðið hefur að geyma allar upplýsingar um fjármögnun og aðrar forsendur kaupandans sem þurfa að koma fram. Hér er sett inn sú upphæð sem kaupandi er tilbúinn að greiða, hvernig kaupin eru gerð, þ.e.a.s. hversu há útborgunin er og hversu hátt lán stendur til að taka. Tilboðið segir einnig til um hvernig greiðslur til seljanda munu berast. Algengt er að greiðslur skiptist niður á undirritun kaupsamnings, við afhendingu íbúðar og síðasta greiðslan er oftast gerð við undirritun afsals. Hér er einnig hægt að setja inn ýmsa fyrirvara, til dæmis um að kaupandi standist greiðslumat og um ástandsskoðun eignarinnar. Mikilvægt er að setja hér inn alla fyrirvara sem nauðsynlegir eru þar sem samþykkt kauptilboð er bindandi. Það er því ekki hægt að afturkalla eða rifta samþykktu kauptilboði nema ef fyrirvarar hafa verið settir inn í það sem ekki eru uppfylltir.
Stundum kemur það fyrir að fleiri en einn eru að bjóða í sömu eign og þá þarf fasteignasalinn að feta þröngan stíg og passa hagsmuni allra aðila. Fasteignasalinn má ekki gefa upp upphæð tilboða annarra aðila í ferlinu og því getur það verið erfitt að átta sig á því hversu hátt á að bjóða. Hér er mikilvægt að bjóða aldrei hærra verð en þú ert tilbúinn að greiða og ræður við. Það er ekki víst að seljandi samþykki strax kauptilboðið þó svo það gerist stundum. Oft samþykkir seljandi ekki tilboðið en gerir gagntilboð sem kaupandi ræður þá hvort hann samþykkir. Ef kaupandi samþykkir ekki gagntilboðið getur hann annað hvort fallið frá kaupunum eða gert annað gagntilboð á móti. Þegar kaupandi og seljandi hafa sæst á verð og skilmála er samþykkt kauptilboð undirritað og vottað.
Þegar þetta ferli með fasteignasalanum er klárað sækir kaupandinn um lánið sem ákveðið hefur verið að taka. Það er gert með því að opna greiðslumatið sem búið er að gera. Ef greiðslumatsferlið hefur ekki hafist þegar hér er komið er hægt að gera það á sama tíma og sótt er um lánið. Með samþykkt greiðslumat og kauptilboð sem endurspeglar það ætti lántökuferlið að jafnaði að vera nokkuð einfalt og fljótafgreitt.
Þegar lánið hefur verið samþykkt fær kaupandinn send til sín fylgiskjöl til undirritunar og þegar þau hafa verið undirrituð fær fasteignasalinn lánaskjölin send. Lánaskjölin eru svo undirrituð við kaupsamning og þá er einnig útbúið skjal sem segir til um hvernig ráðsstafa skuli því láni sem tekið er í bankanum. Fasteignasalinn fer svo með kaupsamninginn og lánaskjölin í þinglýsingu og þegar þau eru tilbúin skilar hann þeim til bankans og lánið er greitt út.
Greiðslan sjálf frá kaupanda til seljanda er oftast innt af hendi í þremur hlutum, hluti við undirritun kaupsamnings, hluti við afhendingu íbúðar og síðasta greiðslan þegar afsalið er undirritað. Afsal er skjal sem endanlega færir eignina frá seljanda yfir á kaupanda og það er oftast undirritað þegar nokkrir mánuðir eru liðnir frá kaupsamningi og allir aðilar hafa uppfyllt skyldur sínar samkvæmt kaupsamningi. Eins og komið er inn á hér að ofan er gott að síðasta greiðslan í kaupunum eigi sér stað við afsalið ef einhverjir leyndir gallar skyldu hafa komið fram á eigninni eða seljandi hefur að einhverju leyti ekki uppfyllt skyldur sínar. Mikilvægt er að halda þeirri upphæð til hliðar sem greiða þarf við afsalið svo kaupandinn geti innt síðustu greiðsluna af hendi.
Þegar afsalinu hefur verið þinglýst ertu orðinn þinglýstur fasteignaeigandi.