Frábærar nýjungar sem hjálpa fyrirtækjum að halda utan um notkun kreditkorta

Frábærar nýjungar sem hjálpa fyrirtækjum að halda utan um notkun kreditkorta

Frábærar nýjungar sem hjálpa fyrirtækjum að halda utan um notkun kreditkorta - mynd

Arion banki heldur áfram að vera í fremstu röð í að bjóða stafrænar nýjungar sem auðvelda fyrirtækjum og einstaklingum að stýra fjármálum sínum á skilvirkan og öruggan hátt. Nú bætir bankinn við tveimur lausnum sem einfalda fyrirtækjum að halda utan um kreditkortaviðskipti sín. Annars vegar er um að ræða stjórnun heimilda í netbanka; hins vegar má nú hlaða myndum af greiðslukvittunum beint inn í Arion appið.

„Við finnum fyrir virkilega mikilli ánægju hjá fyrirtækjum með þessar nýjustu lausnir okkar,“ segir Sigurhans Vignir, vörustjóri á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði, og tekur fram að lausnirnar séu í grunninn mjög einfaldar og þægilegar í notkun.

„Sú fyrri virkar þannig að lykilnotendur netbanka fá auknar heimildir og geta stofnað kort og breytt og stjórnað heimildum kreditkorta fyrirtækisins innan þeirrar heildarheimildar sem ákveðin er í upphafi,“ segir Sigurhans Vignir. „Þetta einfaldar fólki lífið alveg svakalega og hjálpar fyrirtækjum að hafa yfirsýn yfir kortanotkunina. Segjum til dæmis að starfsmaður sé á ferðalagi erlendis og þurfi aukið svigrúm í kortanotkuninni. Þá tekur enga stund að stilla það af innan fyrirtækisins og óþarfi að vera að hringja í okkur.“

„Seinni lausnin er síðan frábær viðbót við þá fyrri en hún felst í því að nú má taka myndir af kvittunum og vista í Arion appinu ásamt viðbótarupplýsingum, s.s. kostnaðarstöð eða bókhaldslykli. Segjum til dæmis að áðurnefndur starfsmaður á ferðalagi fari með viðskiptavini út að borða; kvittunin fyrir kvöldmáltíðinni verður þá, ásamt viðbótarupplýsingum, strax aðgengileg í netbanka fyrirtækisins og þar geta starfsmenn í bókhaldi sótt gögnin. Hér heyrir því sögunni til að fólk í bókhaldi þurfi að velta við hverjum steini í leit að krumpuðum kvittunum.“

Fljótlega verður svo boðið upp á að tengja þessa lausn beint við bókhaldskerfi, þar sem bæði kvittunin og viðkomandi færsluupplýsingar skila sér rakleiðis inn í bókhaldið.

„Við erum alltaf að leita leiða til að einfalda bæði fyrirtækjum og einstaklingum lífið og hjálpa þeim að halda utan um fjármálin.“

Sigurhans Vignir

 

Fleiri greinar