Stofnaðu og fylgstu með reikningum barnanna í Arion appinu

Stofnaðu og fylgstu með reikningum barnanna í Arion appinu

Stofnaðu og fylgstu með reikningum barnanna í Arion appinu - mynd

Við hjá Arion leitum sífellt leiða til að hjálpa einstaklingum að halda utan um fjármálin með einföldum og þægilegum hætti. Nýlega kynntum við til dæmis nýjan fídus í appinu sem heitir Arion fjölskylda og auðveldar fjölskyldum að viðhalda heildarsýn yfir fjármál heimilisins.

Með fjölskyldu-sýninni geta foreldrar fylgst með reikningum barna sinna, öllum hreyfingum á debetkorti og annarri slíkri virkni. Þar geta foreldrar enn fremur stofnað bæði sparnaðarreikninga (t.d. framtíðarreikning) og debetkort fyrir börn sín með fljótlegum og einföldum hætti.

Foreldrar hafa fulla sýn á reikninga barna sinna þangað til börnin ná átján ára aldri og verða fjárráða. Þá hverfur sýn foreldranna.

         

 

Fleiri greinar