„Ég tók sénsa sem ég mundi aldrei taka í alvörunni“

„Ég tók sénsa sem ég mundi aldrei taka í alvörunni“

Frá vinstri: Daníel Árnason 2. sæti, Alexander Jónsson 1. sæti og Ingvar Atli 3. sæti. - myndFrá vinstri: Daníel Árnason 2. sæti, Alexander Jónsson 1. sæti og Ingvar Atli 3. sæti.

Alexander Logi Chernyshov Jónsson, 21 árs nemi í fjármálaverkfræði við Háskóla Reykjavíkur, bar sigur úr býtum í Fjárfestingakeppni háskólanna sem haldin var af Arion banka, í samstarfi við Dyngju, í október síðastliðnum. Keppendur fengu tíu milljón króna í Dyngju appinu og kepptust um að ávaxta peningana eins og kostur var.

Við plötuðum Alexander Loga í örstutt spjall í tilefni af sigrinum.

Bræður með keppnisskap sem hvetja hvor annan

Hvað lærðir þú af þátttöku í keppninni?

„Ég lærði til dæmis mjög mikið um Kelduna,“ segir Alexander Logi, en keldan.is er vefsíða sem safnar saman og birtir upplýsingar um fjármálamarkaðinn og viðskipti á Íslandi. „Maður þarf að vera vakandi fyrir öllu sem gerist á markaðnum og þá er gott að fylgjast vel með fréttum. Einnig er nauðsynlegt að sækja sér upplýsingar erlendis frá, en bæði bandaríski og evrópski markaðurinn hafa auðvitað sitt að segja um það sem gerist hér.“

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að taka þátt?

„Sko, þetta byrjaði sem keppni á milli mín og yngri bróður míns. Það kom mér í gang, sérstaklega þegar hann tók forskotið í menntaskólakeppninni. Allt í einu vorum við svo báðir á toppnum, hann þar, ég hjá háskólanemendum. Þá byrjuðum við að hjálpast að. Hann komst næstum á verðlaunapall – endaði í fimmta sæti í sinni keppni.“

Krefst þekkingar og fjármálalæsis

Hvað var skemmtilegt?

„Það er náttúrlega gaman að geta tekið stóra sénsa því að í Dyngju er ekki verið að sýsla með alvöru peninga. Ég tók sénsa sem ég mundi aldrei taka í alvörunni.“

Hvaða ráðleggingar mundirðu gefa ungu fólki sem hefur áhuga á fjárfestingum?

„Ef þú veist lítið sem ekkert ættirðu frekar að fjárfesta í sjóðum. Þá er einhver á bak við sjóðinn sem veit heilmikið um markaðinn. Hlutabréfamarkaðurinn er mjög áhugaverður staður – en það er nauðsynlegt að vera upplýstur, og með ákveðið fjármálalæsi, til að taka þátt í honum. Ef þú gerir það ekki borgar sig til dæmis frekar að setja peninga inn á íbúðarsparnaðarreikning.“

Strax kominn með talsverða reynslu í bankaheiminum

Þess má geta að Alexander Logi hefur starfað meðfram námi hjá Arion banka undanfarin tvö ár. Hann hóf störf í þjónustuveri Arion banka á Keflavíkurflugvelli en hefur einnig verið í þjónustuveri bankans, í útibúi Arion í Vík, í áhættustýringu og nú síðast á svikavakt Arion.

Hann útskrifaðist árið 2024 úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sem dúx, með hæstu einkunn í sögu skólans; 9,97. Inntur eftir framtíðaráformum sínum, segir Alexander Logi markmiðið að halda áfram að standa sig vel í námi og sinna störfum hjá Arion banka meðfram því.

 

Fleiri greinar