Borgar sig að endurfjármagna?

Borgar sig að endurfjármagna?

 Borgar sig að endurfjármagna? - mynd

Það er mikilvægt að staldra reglulega við og kanna stöðu og kjör þeirra lána og fjárhagslegu skuldbindinga sem þú ert með. Það getur munað miklu að endurfjármagna lán sem bera háa vexti eða eru óhagstæð á einhvern hátt. Við hjá Arion banka endurskoðum reglulega þau lánakjör sem við bjóðum upp á og hvetjum viðskiptavini okkar til þess að fylgjast með og fá ráðgjöf um endurfjármögnun.

Það sem þarf helst að skoða þegar þú veltir endurfjármögnun fyrir þér er eftirfarandi:

Ólíkar ástæður geta legið á bak við endurfjármögnun lána og þarfirnar geta verið mjög mismunandi.

Þeir sem vilja greiða lánið upp hraðar

Ef hagur þinn hefur vænkast og þú sérð að þú ræður við hærri afborganir af húsnæðisláni en þú ert núna með getur verið hagstætt að endurfjármagna lán. Til þess að eignamyndunin sé hraðari getur þú sem dæmi skoðað eftirfarandi möguleika:

  • Stytt lánstímann
  • Breytt úr verðtryggðu láni í óverðtryggt
  • Breytt úr jöfnum greiðslum í jafnar afborganir

Þeir sem vilja lækka afborganir

Ýmislegt getur komið upp á í lífsins ólgusjó og það getur verið gott að skoða endurfjármögnun lána ef greiðslubyrðin af núverandi lánum er orðin of íþyngjandi. Til þess að ráða betur við afborganir getur þú sem dæmi skoðað eftirfarandi möguleika:

  • Lengt í lánstímanum
  • Breytt úr óverðtryggðu láni í verðtryggt
  • Breytt úr jöfnum afborgunum í jafnar greiðslur

Til þess að átta sig betur á þeim lánum sem í boði eru er gott að skoða lánareiknivél Arion banka og setja þar inn þær forsendur sem eru á því láni sem nú þegar er til staðar og á að greiða upp og forsendur nýja lánsins. Þegar þessar forsendur hafa verið settar inn geturðu séð lántökukostnaðinn og kjör nýja lánsins og metið stöðuna betur. Áður en áfram er haldið er gott að hafa allar breytur og forsendur fyrir framan sig og meta það hvort það borgar sig að greiða upp núverandi lán með nýju láni og hvort afborganir breytist í raun og veru við endurfjármögnun.

Ráðgjafar okkar taka einnig vel á móti öllum fyrirspurnum og við mælum eindregið með því að þú bókir fund með þeim til þess að fara yfir þína stöðu.

 

Fleiri greinar