Verðtryggð eða óverðtryggð lán?

Verðtryggð eða óverðtryggð lán?

Verðtryggð eða óverðtryggð lán? - mynd

Mörg okkar tapa hreinlega áttum þegar ólíkar tegundir lána eru skoðaðar. Við fjármögnun fasteigna þarf til dæmis að meta hvort taka skuli verðtryggt eða óverðtryggt lán, eða jafnvel blöndu af hvoru tveggja. En hver er munurinn á slíkum lánum?

Einfaldasta útskýringin er sú að afborganir af verðtryggðum lánum eru lægri og eignamyndun hægari en óverðtryggð lán bera hærri afborganir og leiða þar með til hraðari eignamyndunar.

Verðtryggð lán bera lægri vexti en á móti þá bætist hækkun verðbólgu við höfuðstólinn. Það má því segja að tekið sé lán fyrir hækkun verðbólgu. Þessi hækkun höfuðstóls vegna verðbólgu deilist síðan niður á þá gjalddaga sem eftir eru af láninu og afborganir framtíðarinnar hækka því. Þessi lán henta þeim sem vilja halda reglubundnum afborgunum í lágmarki og forðast að spenna bogann of hátt.

Óverðtryggð lán bera hærri vexti og mánaðarlegar afborganir eru því hærri. Höfuðstóllinn hækkar ekki þar sem segja má að búið sé að greiða verðbólguna. Þessi lán henta þeim sem vilja hraðari eignamyndun og hafa fjárhagslega burði til að takast tímabundið á við hærri afborganir.

Mikilvægt er að framkvæma gaumgæfilegt mat á eigin fjárhagsstöðu áður en ákvörðun um lán er tekin.

 

Fleiri greinar