Hvað er árangur fyrir þér? <br />Sara Björk Gunnarsdóttir

Hvað er árangur fyrir þér?
Sara Björk Gunnarsdóttir

Hvað er árangur fyrir þér? <br />Sara Björk Gunnarsdóttir - mynd

Við spurðum Söru Björk, landsfyrirliða og Evrópumeistara í knattspyrnu, hvað árangur væri fyrir henni.

Titlar og viðurkenningar eru auðvitað mikilvæg markmið. En það er samt ekki það sem stendur upp úr þegar ég hugsa til baka. Fjölmiðlar einblína á titlana og sigrana en það er ansi einfölduð mynd af því sem er kannski heill frábær dagur. Ég hugsa meira um leiðina að titlunum. Öll þessi skref í átt að markmiðinu - og allar hindranirnar sem þú kemst yfir. Baráttuna. Að lenda í meiðslum en ná að koma til baka.

Það veit enginn hversu mikið þú lagðir á þig og hverju þú þarft að fórna. Fjölmiðlar sjá það ekkert. Öll þessi skipti þar sem þú þarft að berjast á æfingu bara til þess að halda út. Maður er kannski með verk í hásininni og líður bara alls ekki vel - en þú þarft samt að komast í gegnum daginn og standa þig vel. Mér finnst árangur vera þegar hlutir eru erfiðir en manni tekst engu að síður að sýna hvað maður getur.

 

 

Maður gefur sjálfum sér ekki nægt kredit fyrir það sem maður er að gera. Eins og þetta sé eitthvað sjálfsagt. Að vera alltaf mætt og standa sig í stykkinu þótt ég sé illa sofin og illa fyrirkölluð. Allir þessir litlu ósýnilegu sigrar. Maður má alveg klappa sjálfum sér á bakið fyrir það. Að hafa lent í mótlætinu en komast samt á toppinn - það er árangur fyrir mér.

 

Fleiri greinar