Ný stafræn lausn hjálpar einstaklingum að halda utan um kvittanir
Arion banki hefur kynnt til sögunnar nýja og einfalda lausn sem gerir einstaklingum kleift að hlaða kortakvittunum beint inn í Arion appið. Þú tekur einfaldlega ljósmynd af kvittun sem tengist kortafærslu og vistar hana í appinu með örfáum smellum. Þetta eykur yfirsýn yfir útgjöld og bætir utanumhald í fjármálum. Þá sparar lausnin bæði tíma og fyrirhöfn við að leita uppi pappírskvittanir síðar meir.
Svandís Edda Jónsdóttir, vörustjóri korta hjá Arion banka, segist finna fyrir mikilli ánægju með nýju lausnina, enda einfaldi hún fólki að halda utan um fjármálin á ýmsa vegu.
„Segjum að þú sért að gera upp baðherbergið og viljir halda utan um allar kvittanir –píparann, múrarann og svo framvegis. Þá er gott að venja sig einfaldlega á að mynda kvittanirnar jafnóðum og geyma í appinu. Við þekkjum öll hvernig pappírskvittanir eiga það til að týnast.“
„Annað gott dæmi væri þegar starfsmaður er á faraldsfæti í útlöndum og fær endurgreiddan kostnað frá vinnuveitanda, t.d. vegna gistingar; nú þarf hann ekki að óttast að kvittanirnar týnist. Sama gildir þegar saumaklúbburinn fer út að borða og einn borgar brúsann á veitingastaðnum; þá er gott að sjá sundurliðunina á kvittun þegar rukka á inn daginn eftir. Loks mætti nefna ferðina til sjúkraþjálfans eða sálfræðingsins; mörg stéttarfélög endurgreiða hluta slíks kostnaðar, gegn framvísun kvittunar. Dæmin er mýmörg.“
Arion banki hefur um árabil lagt áherslu á mæta síauknum kröfum einstaklinga um þægilegar og öruggar stafrænar lausnir í fjármálaþjónustu og er þessi nýjung enn eitt skrefið á þeirri vegferð. Hér má nálgast einfaldar leiðbeiningar um það hvernig nýta má lausnina.