Endurgreiðslan er hjá Arion
Árangur þinn skiptir okkur máli og viljum við að þú njótir góðs af því að vera með fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Þess vegna færðu betri kjör ef þú ert bæði hjá Arion og Verði.
Ef þú ert í viðskiptum hjá Arion og með tryggingar hjá Verði getur þú fengið allt að 7% endurgreiðslu af tryggingunum þínum ef þú ert tjónlaus.
Hver eru skilyrðin?
Skilyrði þess að fá Arion endurgreiðslu eru sáraeinföld. Þú þarft að
- Vera í Arion fríðindum
- Vera með virka Heimilisvernd hjá Verði
- Vera tjónlaus í 12 mánuði frá endurnýjun Heimilisverndar
- Endurnýja Heimilisverndina fyrir næsta tímabil
Inneignin er síðan greidd út mánuði eftir endurnýjun Heimilisverndar.
Gildir þetta um allar tryggingar?
Endurgreiðslan nær yfir allar tryggingar fjölskyldunnar að meðtöldum opinberum gjöldum (þ.á.m. líf-, sjúkdóma- og barnatryggingar). Dæmi um tryggingar væru fasteignin, bíllinn, fjölskyldan, líf- og heilsutryggingar, gæludýr o.s.frv.
Tryggingar vegna fyrirtækja og annarra lögaðila (ríki, sveitarfélög, félagasamtök) falla hins vegar ekki undir endurgreiðsluna.
Hvað þarf að gera til að fá Arion endurgreiðsluna?
Til að geta fengið endurgreiðslu af tryggingum þínum þarftu fyrst að skrá þig í Arion fríðindi. Það er lítið mál að skrá sig til leiks. Þú einfaldlega opnar appið og fylgir örfáum einföldum skrefum.
Í Arion appinu hefurðu líka skýra yfirsýn yfir tryggingarnar þínar og getur fylgst með endurgreiðslunni hækka eftir hvern tjónlausan mánuð.