Ný hagspá greiningardeildar var kynnt í morgun

Ný hagspá greiningardeildar var kynnt í morgun

Ný hagspá greiningardeildar var kynnt í morgun - mynd

Greiningardeild Arion banka kynnti í morgun nýja hagspá á vel sóttum fundi í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

Á fundinum fjallaði Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur í greiningardeild, um efnahagshorfur 2018-2020. Þá flutti Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður deildarinnar, erindið Spá um annað en hagspá.

Greiningardeild Arion banka spáir því að hagvöxtur verði 2-3% til 2020 enda sé nú farið að hægja á hagkerfinu. Spáin gerir ráð fyrir að einkaneyslan muni draga vagninn, á meðan íbúðafjárfesting og fjárfesting hins opinbera muni leggja hönd á plóg. Þá telur greiningardeildin að ferðaþjónustan vaxi áfram en þó mun hægar en áður. Gerir spá greiningardeildar einnig ráð fyrir gengisveikingu og að verðbólga taki að stíga og verði yfir markmiði Seðlabankans út spátímann.

Nánar um hagspá 2018-2020