Arion helsti bakhjarl rannsóknaseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi
Þriðjudaginn 15. apríl var Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands stofnað við athöfn sem fór fram í hátíðasal skólans, á 95 ára afmælisdegi brautryðjandans Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Jafnframt var ritað undir samstarfssamning Arion banka og rannsóknarsetursins en bankinn verður helsti bakhjarl setursins næstu þrjú ár.
Tilgangur rannsóknaseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi er að efla og dýpka þekkingu á stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi, með það að markmiði að stuðla að raunverulegu jafnrétti í efnahagslegri þátttöku, ákvarðanatöku og leiðtogastöðum, bæði innanlands og með hagnýtingu og kynningu rannsókna á alþjóðavettvangi.
Setrið samanstendur af alþjóðlegu og þverfræðilegu teymi úr Háskóla Íslands og úr háskólum bæði austan hafs og vestan, þar með talið Stanford, Columbia og CBS, til að nefna nokkra. Stjórn setursins skipa þau Ásta Dís Óladóttir prófessor við Háskóla Íslands, Viðar Lúðvíksson á Landslögum og Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra og stjórnarformaður setursins. Að auki á stór hópur fræðimanna við Háskóla Íslands og erlendra háskóla aðild að setrinu.
Ásta Dís Óladóttir, stofnandi setursins:
,,Þrátt fyrir að Ísland hafi náð langt í jafnréttismálum og skipað sér í efsta sæti lista Alþjóðaefnahagsráðsins í 15 ár í röð, er talsvert kynjabil enn til staðar þegar kemur að efnahagslegri þátttöku og ákvarðanatöku, stjórnunarstöðum í atvinnulífinu, fjárfestingum og stofnun fyrirtækja. Það eru fáir sem átta sig á því að Ísland er í 44 sæti listans þegar kemur að stjórnunarstöðum kvenna í samfélaginu. Því er það hlutverk rannsóknarsetursins að leita leiða til þess að loka því bili með því að vinna að rannsóknum, hér á landi og erlendis, þróa hagnýtar lausnir sem byggja á traustum gögnum og miðla þekkingu sem nýst getur til stefnumótunar og kerfisbreytinga. Setrið mun leitast við að kortleggja orsakir og hindranir sem viðhalda þessu kynjabili og leiða fram lausnir sem stuðla að kerfisbreytingum.“
Katrín Jakobsdóttir, stjórnarformaður rannsóknasetursins:
„Ég hef þá trú að ákvarðanir sem byggja á rannsóknum og gögnum séu farsælli fyrir samfélagið og standist betur tímans tönn en ákvarðanir sem ekki byggja á slíkum grunni. Þess vegna skiptir máli að rannsaka orsakir þessa kynjabils og nýta niðurstöður þeirra til að koma fram með lausnir sem hægt verður að hagnýta í atvinnulífinu.“
Þá er það markmið aðstandenda setursins að byggja upp öflugan vettvang fyrir þverfaglegar rannsóknir og þekkingarmiðlun á sviði jafnréttis í atvinnulífi og fjárfestingum. Setrið rannsakar viðhorf, áhrif laga og stefnumótunar, framkvæmd ráðninga og þróun leiðtogahæfni með sérstaka áherslu á áhrif kyns en einnig fleiri þátta. Slíkar rannsóknir er erfitt að gera án öflugs bakhjarls og því skiptir samstarfssamningur við Arion banka miklu fyrir starfsemi setursins. En Arion banki hefur í rúmt ár staðið að átaksverkefninu Konur fjárfestum og haldið rúmlega 70 fundi fyrir konur um fjármál, fjárfestingar og stofnun fyrirtækja um land allt sem um 6.500 konur hafa sótt. Markmið átaksins er að efla konur þegar kemur að fjárfestingum og stuðla að jafnari þátttöku kynjanna á fjármálamarkaði.
Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður hjá Arion banka:
„Það er mikið ánægjuefni að koma að stofnun rannsóknarsetursins með þessum öfluga hópi og styðja við starfsemi þess. Arion banki hefur til langs tíma lagt áherslu á jafnréttismál eins og átakið Konur fjárfestum ber með sér. Með því að stuðla að jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi erum við sem þjóð að lyfta bæði atvinnulífinu og samfélaginu öllu. Jöfn tækifæri og þar með aukin þátttaka allra í efnahags- og atvinnulífi eykur verðmætasköpun, hagvöxt og lífsgæði okkar allra.“
Í hátíðarsal Háskóla Íslands rituðu Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Katrín Jakobsdóttir, stjórnarformaður setursins, Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður hjá Arion banka og Jóhann Möller, framkvæmdastjóri markaða hjá Arion banka, undir þriggja ára samstarfssamning Arion banka og rannsóknasetursins.