Arion banki breytir vöxtum

Arion banki breytir vöxtum

Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19 - myndHöfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast þann 21. október næstkomandi.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán

  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,15 prósentustig og verða 3,89%
  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,15 prósentustig og verða 4,64%

Kjörvextir

  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,15 prósentustig og verða 5,05%

Yfirdráttur og greiðsludreifing

  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,25 prósentustig

Bílalán

  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,15 prósentustig og verða 5,45%

Innlán

  • Breytilegir óverðtryggðir innlánavextir hækka ýmist um allt að 0,25 prósentustig eða haldast óbreyttir en vextir á t.d. veltureikningum haldast óbreyttir

Vextir verðtryggðra íbúðalána og verðtryggðir kjörvextir haldast óbreyttir.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.