Metþátttaka í Arion banka mótinu í fótbolta sem fer fram um helgina
Arion banka mótið í fótbolta verður haldið í fjórða sinn nú um helgina. Mótið, sem er fjölmennasta fótboltamót landsins, hefur vaxið ört á undanförnum árum og munu í ár um 2.400 krakkar, strákar og stelpur, taka þátt. Í fyrra voru þátttakendur um 1900 og er því um fjórðungs aukningu að ræða á milli ára. Keppt verður á 18 fótboltavöllum og koma yfir 300 sjálfboðaliðar að framkvæmdinni.
Arion banka mótið er fyrir stelpur í 6., 7. og 8. flokki og stráka í 7. og 8. flokki og fer fram í Víkinni, félagssvæði Víkings í Fossvogi.
Að keppni lokinni fá allir þátttakendur glæsilegan glaðning og verðlaunapening ásamt hamborgaramáltíð að hætti Grillhússins. Frábær stemning hefur verið á mótinu undanfarin ár og mikil ánægja meðal keppenda og aðstandenda þeirra.
Við hvetjum alla til að koma og fylgjast með upprennandi fótboltastjörnum Íslands keppa á skemmtilegu stórmóti um helgina í Víkinni.