Arion banki og HSÍ endurnýja samstarfið

Arion banki og HSÍ endurnýja samstarfið

Arion banki og HSÍ endurnýja samstarfið - mynd

Nýverið var samstarfsamningur Arion banka og Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) endurnýjaður. Nýr samningur gildir út árið 2024.

Arion banki og forverar hafa verið meðal dyggustu bakhjarla HSÍ allt frá árinu 2004. Er það okkur sönn ánægja að endurnýja samstarfið og styðja þannig áfram við landslið Íslands í handbolta. Öll landslið HSÍ munu áfram leika með merki Arion banka á sínum keppnisbúningum.

Það voru þeir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, og Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, sem undirrituðu samninginn.