Skertur opnunartími vegna veðurs

Skertur opnunartími vegna veðurs

Skertur opnunartími vegna veðurs - mynd

Útibú Arion banka um land allt verða lokuð til klukkan 12:00 mánudaginn 7. febrúar þar sem Veðurstofan hefur gefið út rauða og appelsínugula viðvörun sem tekur gildi í nótt og verður í gildi fram eftir morgni.

Viðskiptavinum er bent á Arion banka appið og netbankann þar sem hægt er að framkvæma allar helstu aðgerðir. Einnig verður þjónustuver bankans, 444 7000, opið eins og venjulega frá klukkan 9 til 16.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.