06. febrúar 2015
Halldór Harðarson ráðinn markaðsstjóri Arion banka
Halldór Harðarson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Arion banka. Halldór hefur síðastliðin tvö ár starfað sem framkvæmdastjóri markaðssviðs N1.
Hann starfaði áður m.a. sem forstöðumaður markaðsdeildar Símans 2010-2013, framkvæmdastjóri markaðs- og framleiðsludeildar Latabæjar 2008-2009 og forstöðumaður markaðsdeildar Icelandair 2005-2008. Halldór er með B.Sc. gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands.
Halldór mun hefja störf hjá Arion banka nú í febrúar.