701 fasteignir eignast Hótel Hallormsstað og Hótel Valaskjálf

701 fasteignir eignast Hótel Hallormsstað og Hótel Valaskjálf

Hótel Valaskjálf - myndHótel Valaskjálf

701 fasteignir ehf. er nýr eigandi Hótels Hallormsstaðar og Hótels Valaskjálfs. Stærsti hluthafi 701 fasteigna er Thule Properties sem samanstendur af fjárfestahópi leiddum af Jóhanni Pétri Reyndal og Gísla Steinari Gíslasyni. Nýlega var gengið frá viðskiptunum en 701 fasteignir hafa þegar tekið við rekstri hótelanna.

Hótel Valaskjálf er staðsett á Egilsstöðum en alls eru 39 herbergi í rekstri auk þess sem byggingarréttur til stækkunar á lóðinni fylgir. Hótel Hallormsstaður er um 27 km frá Egilsstöðum staðsett við austurströnd Lagarfljóts inni í Hallormsstaðaskógi. Alls eru 92 herbergi á hótelinu.

Arion banki var ráðgjafi Þráins Lárussonar, seljanda, í viðskiptunum.