Opnað fyrir umsóknir um þátttöku í Startup Reykjavík 2016
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í Startup Reykjavík 2016 og er umsóknarfrestur til 31. mars. Að vanda er leitað eftir spennandi viðskiptahugmyndum til að taka þátt í 10 vikna viðskiptahraðli í sumar. Markmiðið með Startup Reykjavík er að skapa umgjörð þar sem þátttakendur njóta ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að þróa og ýta úr vör nýjum viðskiptatækifærum. Arion banki fjárfestir í hverju félagi fyrir sig og í ár hækkar fjárfesting Arion banka í hverju félagi um 20% frá fyrri árum og verður 2,4 milljónir króna.
Startup Reykjavík hefur fest sig í sessi hér á landi og vakið athygli út fyrir landsteinana, en í fyrra var Startup Reykjavík valinn besti viðskiptahraðall Norðurlanda af Nordic Startup Awards.
Startup Reykjavík, sem fer fram frá 13. júní til 26. ágúst í sumar, er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki leggur til fjármagn í gegnum dótturfélag sitt, Startup Reykjavik Invest ehf., en umsjón verkefnisins er í höndum Icelandic Startups. Þetta er í fimmta sinn sem viðskiptahraðallinn er haldinn og hefur Arion banki hingað til fjárfest í 40 fyrirtækjum frá því verkefnið hófst árið 2012. Þau fyrirtæki, sem hafa farið í gegnum Startup Reykjavík, hafa sótt sér fjármagn sem nemur um einum milljarði króna, ýmist í formi hlutafjár eða styrkja.
Hver sem er getur sótt um í Startup Reykjavik, hvort sem það er einstaklingur eða fyrirtæki. Engar kröfur eru gerðar um hversu langt á veg hugmynd þarf að vera komin. Á undanförnum árum hafa konur verið í minnihluta umsækjenda og þátttakenda. Þær eru því sérstaklega hvattar til að senda inn umsóknir í Startup Reykjavík í ár. Hægt er að sækja um á vefsíðu Startup Reykjavík, www.startupreykjavik.com.
Teymin tíu, sem valin eru til þátttöku, fá:
- 2,4 milljónir króna í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
- 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá leiðbeinendum víðs vegar að úr atvinnulífinu
- Sameiginlega aðstöðu allra viðskiptateymanna í Borgartúni 20
- Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins
Meðfylgjandi eru myndir af þremur teymum sem tóku þátt í Startup Reykjavík 2015.
Fjármögnun fyrirtækja sem hafa tekið þátt í Startup Reykjavík á undanförnum árum
Fjármögnun Startup Reykjavík fyrirtækja eftir árgöngum í m.kr:
Fjármögnun Startup Reykjavík fyrirtækja eftir eðli fjármagns í m.kr:
Fjármögnun Startup Reykjavík fyrirtækja eftir eðli fjármagns í m.kr. frá árinu 2012:
Uppsafnaður fjöldi fjárfestinga Arion banka í sprotafyrirtækjum: