Konur í nýsköpun #EngarHindranir
Næstkomandi fimmtudag standa Startup Reykjavík, Ungar athafnakonur og Women Tech Iceland fyrir viðburðinum Konur í nýsköpun #EngarHindranir. Viðburðurinn stendur á milli kl. 15 og 17 í Marshall húsinu og er haldinn í samstarfi við Sendiráð Banaríkjanna í Reykjavík og Crowberry Capital.
#EngarHindranir er átak sem Icelandic Startups stendur fyrir til þess að hvetja konur til þátttöku í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi með því að sýna sterkar fyrirmyndir úr sprotaumhverfinu. Átakið hefur skilað sér í jafnara kynjahlutfalli í verkefnum sem Icelandic Startups stendur fyrir.
Fram koma:
- Kolbrún Hrafnkelsdóttir, forstjóri og stofnandi Florealis
- Þórey Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent
- Emily Cintora, stjórnmálaerindreki Sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík, og Ester Halldórsdóttir, viðskiptafulltrúi Sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík
- Helga Valfells, Hekla Arnardóttur og Jenný Ruth Hrafnsdóttir, stofnendur fjárfestingarsjóðsins Crowberry Capital, munu deila tölfræði um fjárfestingar á Íslandi, hverjir eru að leita að fjármagni og hverjir eru að fá fjármagn
Fundarstjóri verður Edda Konráðsdóttir, verkefnastjóri Startup Reykjavík.
Sætafjöldi er takmarkaður og því mikilvægt að staðfesta mætingu.
Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups. Þar njóta tíu sérvalin sprotafyrirtæki ráðgjafar og leiðsagnar þaulreyndra sérfræðinga í tíu vikur í þeim tilgangi að hraða þróunarferlinu og koma vöru á markað. Opið er fyrir umsóknir á startupreykjavik.is til og með 8. apríl.