Vel sóttur fræðslufundur um greiðslur úr lífeyrissparnaði

Vel sóttur fræðslufundur um greiðslur úr lífeyrissparnaði

Vel sóttur fræðslufundur um greiðslur úr lífeyrissparnaði - mynd
Snædís Ögn Flosadóttir, framkvæmdastjóri LSBÍ og EFÍA - mynd
Snædís Ögn Flosadóttir, framkvæmdastjóri LSBÍ og EFÍA
Vel sóttur fræðslufundur um greiðslur úr lífeyrissparnaði - mynd

Fræðslufundur um greiðslur úr lífeyrissparnaði, sem haldinn var í Arion banka síðastliðinn miðvikudag, 25. nóvember, var mjög vel sóttur en um 180 manns mættu á fundinn. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá hve mikill áhugi var meðal þeirra sem nálgast starfslokaaldur.

Markmið fundarins var að kynna reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, skattalega meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og greiðslna frá Tryggingastofnun.

Talsverðar umræður sköpuðust meðal fundargesta í lok fundar. Fyrirlesari var Snædís Ögn Flosadóttir framkvæmdastjóri LSBÍ og EFÍA.