Hækkun stórgreiðslumarka í 30 milljónir króna
Seðlabanki Íslands hefur breytt fjárhæðamörkum í millibankakerfi sínu. Samhliða þeirri breytingu hefur Arion banki hækkað hámarksupphæð stórgreiðslna úr 10 milljónum króna í 30 milljónir króna.
Þetta felur í sér að allar greiðslur sem nema lægri fjárhæð en 30 milljónum króna fara í gegnum smágreiðslukerfið, sem er opið allan sólahringinn alla daga ársins. Greiðslur yfir þeirri fjárhæð er aðeins hægt að framkvæma milli kl. 9:00 og 16:10 á virkum dögum.
Ef þú hefur spurningar eða þarft frekari upplýsingar, þá erum við alltaf tilbúin að aðstoða.