Arion banki breytir vöxtum innlána og annarra útlána en íbúðalána
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast, en þann 14. október kynnti bankinn breytingar á íbúðalánavöxtum, eins og sjá má hér.
Breytilegir kjörvextir hækka 30 dögum eftir tilkynningu þar um en vextir yfirdráttarlána og innlána breytast á morgun 22. október.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Kjörvextir
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 8,60%
- Almennir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,75 prósentustig og verða 4,45%
Bílalán
- Kjörvextir bílalána hækka um 0,25 prósentustig.
Yfirdráttur og greiðsludreifing
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga kreditkorta hækka um 0,25 prósentustig
Innlán
- Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að 0,35 prósentustig. Vextir veltureikninga hækka um 0,05 prósentustig.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.