20. mars 2020
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Arion banki lækkar vexti
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast þann 23. mars næstkomandi.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,30% og verða 4,19%
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,30% og almennir verðtryggðir kjörvextir lækka um 0,10%
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga haldast ýmist óbreyttir eða lækka um 0,30% - 0,50%
- Vextir bílalána lækka um 0,10% - 0,50%
- Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05% - 0,50%
- Vextir íbúðalána með föstum vöxtum eru óbreyttir
Nánar má lesa um vexti bankans í vaxtatöflu bankans.