Arion banki með mestu veltu á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði árið 2022
Á árinu 2022 var Arion banki með hæstu hlutdeild allra markaðsaðila í miðlun hlutabréfa og skuldabréfa í kauphöll Nasdaq Iceland. Á hlutabréfamarkaði var velta bankans 445 milljarðar króna sem samsvarar 21,5% hlutdeild og er það sjöunda árið í röð sem Arion banki er með mestu hlutabréfaveltu allra markaðsaðila í kauphöll Nasdaq Iceland. Á skuldabréfamarkaði var velta bankans 518 milljarðar króna og hlutdeildin 19,8%, sem var jafnframt mesta skuldabréfavelta allra markaðaðila á Nasdaq Iceland.
Arion banki var einnig með hæstu hlutdeild markaðsaðila á First North markaðinum eða 35,4%.
Heimild: Nasdaq Iceland