Getur þú verið #plastlaus í september?
Árvekniátakið Plastlaus september er nú haldið í fyrsta sinn og hófst þann 1. september. Tilgangur átaksins er að vekja neytendur til umhugsunar um plastnotkun og allan þann plastúrgang sem daglega fellur til. Markmiðið er að leita leiða til að draga úr plastnotkun.
Plast brotnar á löngum tíma niður í smærri einingar en eyðist ekki og því má í raun segja að allt plast sem framleitt hefur verið sé ennþá til í einhverri mynd. Plastlaus september hvetur okkur til að kaupa minna af einnota plasti, hvort sem við kjósum að taka þátt í einn dag, eina viku, heilan mánuð eða jafnvel til frambúðar.
Arion banki er stoltur styrktaraðili átaksins en bankinn hefur að undanförnu stigið ýmis skref með það að markmiði að draga úr plastnotkun og vernda umhverfið. Þau skref eru til dæmis:
- Fjölnota innkaupapokar fyrir starfsfólk og viðskiptavini
- Bréfpokar úr endurunnum pappír í stað plastpoka í útibúum Arion banka
- Kúlupennar úr endurunnu plasti í stað einnota plasts
- Glerflöskur í stað plastflaskna í fundarherbergjum í höfuðstöðvum bankans
Við hjá Arion banka munum halda áfram á sömu braut en aðgerðir starfsfólks og viðskiptavina skipta sömuleiðis höfuðmáli. Við hvetjum til umhugsunar og aðgerða til að draga úr notkun einnota plasts og minnum einnig á mikilvægi þess að flokka það plast sem fellur til og koma því til endurvinnslu.