Beingreiðsluleikur Arion banka
Beingreiðsluleikur Arion banka hófst í júlí og stendur yfir til áramóta.
Vinningshafi í beingreiðsluleiknum okkar í októbermánuði er Róbert Marvin Gíslason. Hann skráði reikning í beingreiðslu og hlaut iPhone 6 í verðlaun. Við vonum að vinningurinn komi sér vel.
Með Róberti er Elísabet, útibússtjóri Arion banka í Borgartúni 18.
Allir sem skrá reikninga í beingreiðslu fyrir lok mánaðar eiga möguleika á að vinna iPhone 6. Því fleiri reikninga sem þú skráir, þeim mun meiri líkur á að vinna.
Reikningar sem eru skráðir í beingreiðslu eru alltaf greiddir á réttum tíma og því þarft þú ekki að hafa áhyggjur af dráttarvöxtum.
Þú getur skráð reikninga í beingreiðslu í netbankanum þínum, útibúi eða hringt í þjónustuver.