Stórskemmtilegt Arion banka mót um síðustu helgi
Mikill fjöldi fólks var saman kominn í félagssvæði Víkings í Fossvogi um síðustu helgi á Arion banka mótinu í fótbolta. Mjög góð þátttaka var á mótinu en um 2.100 þátttakendur í 366 liðum tóku þátt í keppninni í ár.
Arion banka mótið er fyrir börn í 7. og 8. flokk stúlkna og drengja og er stærsta mótið þar sem bæði kynin spila á sama tíma. Er þetta í áttunda sinn sem mótið er haldið og hefur fjöldi þátttakenda farið vaxandi ár frá ári.
Frábær stemning var í Víkinni og heppnaðist mótið afar vel. Bíbí, Blaki og Ari voru að sjálfsögðu á staðnum og sáu um að skemmta krökkunum.
Liðamyndir frá mótinu má sjá hér á arionbanki.is.