28. nóvember 2019
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Arion banki hættir móttöku á 500 evru seðlum
Arion banki mun frá 1. desember nk. ekki lengur taka á móti 500 evru seðlum.
Ástæða þessa er að nýverið var samþykkt löggjöf í Danmörku um að hætta notkun á seðlunum og þar sem bankinn kaupir gjaldeyri af dönskum bönkum getum við því miður ekki tekið á móti slíkum seðlum hér eftir.