Gengið til samninga við Arcus ehf. um kaup á Arnarlandi
Eigendur Arnarlands ehf., Landey ehf. og Fasteignafélagið Akurey ehf., hafa ákveðið að ganga til samningaviðræðna við fasteignaþróunarfélagið Arcus ehf. um kaup félagsins á öllu hlutafé Arnarlands. Ákvörðunin er tekin í kjölfar söluferlis sem byggði á útboðsfyrirkomulagi. Arnarland ehf. er eigandi að 9 hektara landi á Arnarneshálsi í Garðabæ sem gengur undir heitinu Arnarland.
Arcus ehf., sem er í eigu Þorvaldar Gissurarsonar, er systurfélag byggingafyrirtækisins ÞG verktaka sem Þorvaldur stofnaði árið 1998.
Gert er ráð fyrir glæsilegri íbúðabyggð í Arnarlandi þar sem heimilt er að reisa allt að 451 íbúðareiningu, samtals um 50.000 fermetra af íbúðarhúsnæði. Einnig er heimild fyrir allt að 36.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði á svæðinu.
Nánari upplýsingar um svæðið og uppbyggingaráform má finna á heimasíðu félagsins: www.arnarland.is.