Morgunverðarfundur um stöðu félagslegra framfara

Morgunverðarfundur um stöðu félagslegra framfara

Mynd fengin frá Kópavogsbæ. - myndMynd fengin frá Kópavogsbæ.

Hver er staða Íslands í samfélagi þjóðanna þegar kemur að því sem skiptir tilveru fólks mestu máli svo sem góðu aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu og hagkvæmu húsnæði í frjálsu, öruggu og jöfnu samfélagi?

Í Arion banka, miðvikudaginn 26. september, verður farið ofan í saumana á stöðu Íslands á glænýjum lista Social Progress Imperative stofnunarinnar yfir hvernig þjóðum heimsins tekst að ráðstafa þjóðartekjum þannig að þær komi sem flestum til góða.

Ísland er í 2. sæti af þeim 146 þjóðum sem metnar hafa verið út frá lífsgæðum og styrk félagslegra framfara og hækkar um eitt sæti frá því í fyrra. Farið verður yfir niðurstöður Íslands og styrkleikar skoðaðir en einnig hvað þarf að gera betur, meðal annars með tilliti til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, þann 26. september.
Húsið opnar kl. 8.15 með léttum morgunverði, dagskrá hefst kl. 8.30 og lýkur kl. 10.00.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Skráning fer fram hér.