Sumarlaunaleikur Arion banka
Nú hefur verið dregið út í sumarlaunaleik Arion banka en unglingar sem lögðu launin sín inn á reikning hjá bankanum í sumar voru sjálfkrafa með í leiknum.
Hundrað heppnir krakkar voru dregnir út 30. ágúst síðastliðinn og fengu 10.000 krónur hver og hefur fjárhæðin verið lögð inn á reikninga þeirra. Að auki fékk einn heppinn viðskiptavinur 50.000 krónur en það var Guðný Vala Björgvinsdóttir sem var sú heppna. Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Guðnýju Völu Björgvinsdóttur vinningshafa ásamt Sædísi Ívu Elíasdóttur svæðis- og útibússtjóra hjá Arion banka.