Opnir viðburðir Startup Reykjavik í sumar
Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík er nú kominn í gang og líkt og síðustu ár fer starfsemin fram í Borgartúni 20. Teymin eru nú á sinni annarri viku og hafa fundir með mentorum einkennt starfið þessa vikuna.
Nokkrir opnir viðburðir verða haldnir í sumar og eru áhugasamir hvattir til þess að mæta.
Opnir viðburðir framundan:
- PopUp & Pitch - fimmtudaginn 28. júní kl. 17.00. Borgartúni 20, 3. hæð
Fimm fyrirtækjanna halda örkynningar á sinni starfsemi. Að því loknu verður boðið upp á grillaða hamborgara og drykki.
- Q&A með Chandini Ammineni - þriðjudaginn 10. júlí kl. 16-17. Borgartúni 20, 3. hæð
Chandini er meðeigandi hjá 500 Startups, sem er einn af stóru viðskiptahröðlunum í Bandaríkjunum. Hún er reyndur fjárfestir og fyrirlesari og þekkir vel áskoranirnar við að byggja upp fyrirtæki frá grunni. Chandini heldur stuttan fyrirlestur og tekur við spurningum í kjölfarið.
- PopUp & Pitch - fimmtudaginn 26. júlí kl. 17. Borgartúni 20, 3. hæð
Fimm fyrirtækjanna halda örkynningar á sinni starfsemi. Að því loknu verður boðið upp á grillaða hamborgara og drykki.
Startup Reykjavík er nú haldið sjöunda árið í röð. Í lok sumars munu 70 fyrirtæki hafa farið í gegnum viðskiptahraðalinn. Startup Reykjavík hefur þannig sýnt sig vera mikilvægur hluti af stuðningsumhverfi frumkvöðla á Íslandi. Arion banki er eigandi Startup Reykjavik og vinnur verkefnið í náinni samvinnu við Icelandic Startups.
Nánar um Startup Reykjavik