Ferð til fjár – fyrsti þáttur í kvöld

Ferð til fjár – fyrsti þáttur í kvöld

Ferð til fjár – fyrsti þáttur í kvöld - mynd

Í kvöld kl. 20:05 hefjast sýningar á þáttunum „Ferð til fjár“ á RÚV, en alls verða sýndir sex þættir.

Um er að ræða skemmtilegan og öðruvísi þátt um fjármál með það markmið að bæta fjármálalæsi landsmanna. Fjallað er um fjármál einstaklinga og eru algengar ranghugmyndir um peninga, sparnað og eyðslu ræddar. Í þáttunum er meðal annars fylgst með fjölskyldu sem leyfir Mána Mar 13 ára syninum að yfirtaka fjármál heimilisins í mánuð. Máni Mar þarf að passa upp á að tekjur og útgjöld passi saman yfir tímabilið nýtur hann aðstoðar Ragnheiðar, útibússtjóra í aðalútibúi bankans Borgartúni 18, við að stýra fjármálum heimilisins þennan mánuðinn.

Handritshöfundar þáttanna eru þau Breki Karlsson, Baldvin Z og Steinunn Þórhallsdóttir. Umsjón er í höndum Helga Seljan en leikstjórar eru þeir Baldvin Z og Arnór P. Arnarson.
Frekari upplýsingar um þættina má einnig sjá á facebook síðu „Ferð til fjár“, https://www.facebook.com/ferdtilfjar

Á meðfylgjandi myndum má sjá aðstandendur þáttanna á forsýningu fyrsta þáttarins sem fór fram í höfuðstöðvum bankans nú í vikunni.