Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2014

Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2014

Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2014 - mynd

Hagnaður Arion banka á fyrri helmingi ársins 2014 nam 17,4 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 5,9 milljarða króna á sama tímabili 2013. Arðsemi eigin fjár var 23,4% samanborið við 8,9% á sama tímabili árið 2013. Heildareignir námu 949,0 milljörðum króna samanborið við 938,9 milljarða króna í árslok 2013.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 25,6% en var 23,6% í árslok 2013.

Helstu atriði árshlutareikningsins:

  • Hagnaður eftir skatta nam 17,4 mö.kr. samanborið við 5,9 ma.kr. á sama tímabili 2013.
  • Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 14,5 mö.kr. samanborið við 4,5 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2013.
  • Rekstrartekjur hækka á milli ára og námu 25,7 mö.kr. samanborið við 20,7 ma.kr. á sama tímabili árið 2013. Hækkun hefur átt sér stað í öllum þáttum rekstrarins nema í hreinum vaxtatekjum, mesta hækkunin er í hreinum fjármunatekjum.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 12,0 mö.kr. samanborið við 12,7 ma.kr. á sama tímabili 2013.
  • Hreinar þóknanatekjur námu 6,6 mö.kr. samanborið við 5,3 ma.kr. á sama tímabili 2013. Aukningin er einkum tilkomin vegna hærri þóknanatekna af greiðslukortum og af starfsemi fjárfestingarbankasviðs.
  • Tekju- og bankaskattar námu samtals 3,8 mö.kr. samanborið við 1,9 ma.kr. á sama tímabili 2013.
  • Hagnaður af aflagðri starfsemi nam 6,5 mö.kr. samanborið við 65 m.kr. tap á sama tíma 2013. Hagnaðurinn er nær eingöngu tilkominn vegna sölu á 18,8% eignarhlut bankans í HB Granda hf.
  • Rekstrarkostnaður nam 13,0 mö.kr. samanborið við 12,9 ma.kr. á sama tímabili 2013.
  •  Hrein virðisbreyting er jákvæð á tímabilinu og nemur 2,0 mö.kr. samanborið við 134 m.kr. tekjufærslu á sama tímabili 2013. Virðisaukning útlána til fyrirtækja nemur 2,3 mö.kr. á fyrri helmingi ársins en niðurfærsla útlána til einstaklinga nemur 0,9 mö.kr. Virðisaukning annarra eigna nemur 0,7 mö.kr. á tímabilinu.
  • Arðsemi eigin fjár var 23,4% en var 8,9% á sama tímabili 2013.
  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 2,8% en var 3,1% á sama tíma árið 2013.
  • Kostnaðarhlutfall var 50,5% en var 62,4% á sama tímabili 2013.
  • Heildareignir námu 949,0 mö.kr., samanborið við 938,9 ma.kr. í árslok 2013.
  • Eigið fé bankans var 154,5 ma.kr. en nam 144,9 mö.kr. í lok árs 2013. Bankinn greiddi arð til hluthafa sinna á tímabilinu upp á 7,8 ma.kr.
  • Eigninfjárhlutfall nam 25,6% í lok tímabilsins samanborið við 23,6% í árslok 2013.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma bankans á fyrstu sex mánuðum ársins er mjög góð og í takt við okkar væntingar. Grunnrekstur bankans einkennist áfram af stöðugleika og fjárhagslegur styrkur bankans heldur áfram að vaxa. Á undanförnum misserum höfum við unnið að því að auka vægi þóknanatekna í heildartekjum bankans og er ánægjulegt að sjá árangur af þeirri vinnu í þessu uppgjöri. Sala bankans á hlutum í HB Granda hf. setur mark sitt á uppgjörið með jákvæðum hætti. Salan á HB Granda og skráning fyrirtækisins á Aðallista Kauphallarinnar var mikilvægur áfangi fyrir okkur, en einnig var mikilvægt fyrir hlutabréfamarkaðinn á Íslandi að öflugt sjávarútvegsfyrirtæki væri skráð á Aðallista Kauphallarinnar. Góð afkoma á tímabilinu styrkir enn frekar eiginfjárhlutfall bankans sem er nú 25,6% sem er vel yfir þeim kröfum sem gerðar eru til bankans. Þá greiddi bankinn eigendum sínum arð á tímabilinu. 

Það er sérstakt ánægjuefni að hafa komið að tveimur stórum fjárfestingarverkefnum hér á landi undanfarna mánuði. Um er að ræða verkefni á vegum United Silicon annars vegar og Silicor Materials hins vegar. United Silicon er komið í framkvæmdafasa en Silicor er enn í þróun. Hvort tveggja mjög spennandi verkefni sem auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi. Þeim fylgja fjöldi nýrra starfa og auknar gjaldeyristekjur til framtíðar. Þessi verkefni kalla á mikla fjárfestingu hér á landi en það hefur háð íslensku efnahagslífi undanfarin ár að fjárfesting hefur verið í sögulegu lágmarki. Það er því ánægjulegt að Arion banki geti með styrk sínum stuðlað að brautargengi þessara verkefna.“

Afkomutilkynning Arion banka 1H 2014

Árshlutareikningur Arion banka 30. júní 2014

Afkomukynning Arion banka 1H 2014