Varað við fölskum smáskilaboðum

Varað við fölskum smáskilaboðum

Varað við fölskum smáskilaboðum - mynd

Við vörum við fölskum smáskilaboðum (SMS) sem send hafa verið viðskiptavinum undanfarið með það að markmiði að komast yfir greiðslukortaupplýsingar. Skilaboðin eiga að líta út eins og skilaboð frá Arion banka og er fólk beðið um að staðfesta öryggisupplýsingar með því að smella á hlekk.

Um er að ræða fölsk skilaboð og biðjum við fólk um að smella ekki á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum. Ef þú hefur opnað hlekkinn og slegið inn kortaupplýsingar er mikilvægt að fara strax inn í Arion appið og frysta kortið og hafa samband við Arion banka í síma 444 7000. Boðið er upp á sólarhringsþjónustu vegna greiðslukorta.

Hafa ber í huga að Arion banki sendir aldrei út smáskilaboð eða tölvupósta með hlekkjum á síður þar sem viðskiptavinir eru beðnir um að gefa upp kortaupplýsingar, CCV númer korta, notendanöfn, lykilorð eða leyninúmer reikninga.

Nánari upplýsingar um öryggismál og varnir gegn svikum má finna hér.