29. febrúar 2024
Markaðsdagur Arion banka haldinn á morgun 1. mars
Arion banki mun halda markaðsdag bankans 2024 á morgun, föstudaginn 1. mars, í höfuðstöðvum bankans Borgartúni 19 frá kl. 8.30 til 12.30. Fundurinn fer fram á ensku og verður streymt beint. Á milli 8:30 og 9:00 verður boðið upp á létta morgunhressingu.
Viðburðinum verður stýrt af Benedikt Gíslasyni bankastjóra ásamt hluta af stjórnendateymi Arion banka samstæðunnar.
Frekari upplýsingar um viðburðinn og skráning fer fram hér.