Útibúið í Borgarnesi opnar á 2. hæð
Á morgun, föstudaginn 8. apríl, mun útibúið í Borgarnesi opna í breyttri mynd. Útibúið hefur verið staðsett á fyrstu hæð um árabil en flytur nú á 2. hæð eftir gagngerar endurbætur.
Undanfarið hafa staðið yfir miklar framkvæmdir í húsinu og er útibúið hið glæsilegasta. Á fyrstu hæð verður áfram boðið upp á hraðþjónustu þar sem viðskiptavinir geta afgreitt sig sjálfir í gegnum hraðbanka.
Í tilefni opnunarinnar á 2. hæð mun Ari, apinn góðkunni úr Sparilandi, mæta í útibúið á milli kl. 14.00-16.00. Heitt verður á könnunni og boðið upp á veitingar. Verið hjartanlega velkomin.