Startup Reykjavík valinn besti viðskiptahraðallinn
Startup Reykjavík, viðskiptahraðall Arion banka, var í gær valinn besti viðskiptahraðallinn á Íslandi.
Úrslitin í Nordic Startup Awards á Íslandi voru kynnt í Háskólanum í Reykjavík í gær og tók Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður Arion banka í nýsköpun, við verðlaununum. Arion banki er afar stoltur eigandi Startup Reykjavík og óskum við samstarfsaðilum okkar í Icelandic Startups til hamingju með árangurinn.
Úrslit allra Norðurlandanna verða svo tilkynnt á lokahófi Nordic Startup Awards, sem að þessu sinni verður haldið í Reykjavík þann 31. maí í Hörpu.
Íslensku verðlaunahafarnir voru eftirfarandi:
- Startup Media of the Year: Norðurskautið
- Best Investment Company: Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
- Best Business Angel: Kjartan Olafsson
- Best Office Space: Íslenski Sjávarklasinn
- Best Accelerator Program: Startup Reykjavik
- Best Social Tech Startup: Karolina Fund
- Best IoT Startup: Medilync
- Best Exponential Startup: Guide to Iceland
- Best Bootstrapped: GeoSilica Iceland
- CTO Hero of The Year: Ragnar Fjölnisson
- Newcomer of the Year: Sling
- People's Choice: Medilync
- Founder of the Year: Fida Abu Libdeh
- Startup of the Year: Mint Solutions