19. desember 2023
Ekki verður lengur tekið við dönskum 500 og 1.000 króna seðlum
Arion banki mun nú um áramótin hætta að taka við dönskum 500 kr. og 1.000 kr. seðlum þar sem erlendur samstarfsaðili okkar tekur ekki lengur við þeim vegna hertra peningaþvættisreglna í Danmörku.
Þau sem eiga danska 500 og 1.000 króna seðla og vilja skipta yfir í íslenskar krónur í útibúi Arion þurfa að gera það fyrir áramótin. Nauðsynlegt er að eiga innlánsreikning hjá bankanum og hafa lokið áreiðanleikakönnun.