Aðalfundur Arion banka 2017

Aðalfundur Arion banka 2017

Aðalfundur Arion banka 2017 var haldinn í dag, fimmtudaginn 9. mars, í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem ársreikningur bankans var samþykktur. Breytingar á launum stjórnar, sem fela í sér 6,6% meðaltalshækkun á milli ára, voru samþykktar. Einnig var starfskjarastefna bankans samþykkt óbreytt frá fyrra ári, fyrir utan orðalagsbreytingu. Jafnframt var ákveðið að Deloitte ehf. gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi bankans í samræmi við ákvörðun hluthafafundar frá 6. febrúar 2015 og aðalfundar 19. mars 2015. Ákveðið var að greiða ekki út arð en stjórn bankans hefur víðtæka heimild til að leggja fram tillögu um arðgreiðslu eða aðra ráðstöfun eigin fjár og því mun stjórnin mögulega boða til aukahluthafafundar síðar á árinu þar sem tillaga um slíka ráðstöfun yrði lögð fyrir.

Á fundinum voru eftirfarandi endurkjörnir í stjórn bankans: Brynjólfur Bjarnason, Guðrún Johnsen, John P. Madden, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund, Monica Caneman og Þóra Hallgrímsdóttir. Jafnframt var Jakob Már Ásmundsson kjörinn nýr í stjórn bankans en Benedikt Olgeirsson hættir í stjórninni. Áfram er jöfn kynjaskipting í stjórn bankans. Kirstín er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum.

Varamenn í stjórn bankans voru einnig endurkjörnir. Varamenn eru: Björg Arnardóttir, Ólafur Örn Svansson og Sigurlaug Ásta Jónsdóttir.

Skýrsla stjórnar 2016

Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka, flutti skýrslu stjórnar. Monica sagði árið 2016 hafa verið gott ár en um margt ólíkt fyrri árum, sem einkenndust af sölu yfirtekinna eigna og þar með vinnu við málefni sem tengdust fortíðinni. Á móti hafi árið 2016 einkennst af bjarti sýn á framtíðina og vinnu við verkefni sem skipta miklu fyrir framtíðarþróun bankans. Kaup á tryggingafélaginu Verði gengu í gegn á árinu og bankinn opnaði nýtt útibú á Keflavíkurflugvelli. Að auki hafi dótturfélag Arion banka, Valitor, haldið áfram fjárfestingu í starfsemi sinni í Danmörku og Bretlandi. Jafnframt hafi Arion banki fjárfest umtalsvert í þróun nýrra stafrænna lausna á árinu og er bankinn í fararbroddi á því sviði hér á landi.

Monica fjallaði um þá staðreynd að kjör bankans á erlendum lánsfjármörkuðum hafi batnað mikið á undanförnum misserum. Að hennar mati er það fyrst og fremst til marks um aukið traust skuldabréfafjárfesta til bankans og íslensks hagkerfis. Skipti þar miklu sá árangur sem hefur náðst í rekstri bankans og uppbyggingu íslensks efnahagslífs, sem og þau mikilvægu skref sem tekin hafa verið við afnám gjaldeyrishafta. Á árinu 2016 gaf Arion banki út tvö skuldabréf í evrum til breiðs hóps fjárfesta. 

Monica fjallaði um nýja stefnu Arion banka í málefnum sem snúa að samfélagsábyrgð bankans og samþykkt var af stjórn á árinu. Eitt af markmiðum nýrrar stefnu er að auka markmiðasetningu og fjölga mælikvörðum á þessu sviði. Hefur nokkuð ítarlegri umfjöllun um samfélagsáherslur bankans verið bætt við ársskýrslu Arion banka 2016. Þar horfir bankinn annars vegar til atriða sem UN Global Compact tekur til og ófjárhagslegra atriða sem Alþjóðasamtök kauphalla hafa lagt áherslu á að skráð félög geri grein fyrir í sinni skýrslugjöf.

Ljóst varð á árinu 2016 að bönkum er áfram ætlað að greiða bankaskatt sem ekki leggst á aðrar innlendar atvinnugreinar eða erlenda banka. Monica sagði skattinn, sem leggst á skuldir bankanna, gera bönkum erfitt um vik í samkeppni á innlendum markaði en einnig við erlend fjármálafyrirtæki um fjármögnun stærstu fyrirtækja landsins. Öll rök fyrir framlengingu bankaskattsins byggja að mati Monicu á veikum grunni og telur hún mikilvægt að þessi skattlagning verði endurskoðuð. Hugsanlega gæti fyrsta skrefið falist í því að fella bankaskatt niður af skuldum sem nýttar eru til fjármögnunar á lánum til íbúðakaupa.
Monica telur að mörg mikilvæg skref hafi verið tekin á árinu 2016 í uppbyggingu bankans til framtíðar. Hún þakkaði stjórnendum og starfsmönnum þeirra framlag til þess árangurs sem náðst hefur.

Uppgjör Arion banka á árinu 2016

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, fór yfir uppgjör bankans á árinu 2016. Afkoma bankans var að mati Höskuldar í takt við væntingar. Höskuldur sagði grunnstarfsemi bankans standa vel og að fjárhagsstaða bankans héldi áfram að styrkjast. Hagnaður ársins nam 21,7 milljörðum króna og arðsemi eigin fjár nam 10,5%. Höskuldur ræddi jafnframt áskoranir sem voru í ytra umhverfi bankans á árinu og höfðu áhrif á afkomu af grunnstarfsemi hans. Til að mynda hafði þróun á verðbréfamörkuðum og launaþróun í kjölfar almennra kjarasamninga neikvæð áhrif á afkomu ársins 2016. Nefndi Höskuldur að sala Valitor á hlut í Visa Europe til Visa Inc. og virðisbreytingar útlána hafi hins vegar haft jákvæð áhrif á uppgjör bankans. Höskuldur sagði fjárfestingar í nýjum þjónustuleiðum og útibúaneti bankans einnig hafa sett mark sitt á starfsemi bankans á árinu.

Í því samhengi ræddi Höskuldur að bankaþjónusta væri að breytast og að viðskiptavinir bankans kysu nú að nýta stafræna þjónustu, eins og netbankann og Arion appið, í auknum mæli. Jafnframt hafi Arion banki á undanförnum árum tekið í notkun nýja kynslóð hraðbanka í útibúum sínum þar sem viðskiptavinir geta afgreitt sig sjálfir, hratt og vel. Höskuldur sagði þessa þróun óhjákvæmilega hafa áhrif á þá þjónustu sem bankinn veiti í útibúum sínum, þar sem nú er aukin áhersla á ráðgjöf á sviði fjármála og að unnið hafi verið að því að laga starfsemi bankans að þessari breyttu eftirspurn. Höskuldur sagði það markmið starfsfólks bankans að koma til móts við óskir viðskiptavina og kynna til leiks þægilegar leiðir fyrir þá til að sinna sínum fjármálum, þegar og þar sem þeim hentaði.

Höskuldur tók undir með Monicu Caneman, stjórnarformanni Arion banka, um að það væru vonbrigði að stjórnvöld skyldu hafi ákveðið að framlengja bankaskattinn svokallaða. Höskuldur sagði að þar sem bankaskatturinn væri skattur á fjármögnun eða skuldir bankanna, sem að stærstum hluta væru innlán viðskiptavina, þá væri bankaskatturinn fyrst og fremst skattur á innlán almennings og fyrirtækja. Það gæfi augaleið að slík skattlagning væri ekki góð til lengri tíma. Alls greiddi Arion banki á
árinu 2016 um fimm milljarða í skatta sem fyrirtæki í öðrum atvinnugreinum greiða ekki.

Höskuldur ræddi sérstaka áherslu Arion banka á stuðning við nýsköpun á Íslandi. Arion banki styður meðal annars við nýsköpunarstarf í grunnskólum og menntaskólum landsins. Einnig hefur bankinn gegnt lykilhlutverki í stofnun og þróun viðskiptahraðla fyrir frumkvöðla hér á landi, eins og Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík. Fjárfesti bankinn í 17 sprotafyrirtækjum á árinu 2016 í gegnum hraðlana og hefur alls fjárfest í rúmlega 70 fyrirtækjum frá árinu 2012.

Höskuldur þakkaði viðskiptavinum bankans fyrir samstarfið og starfsfólki bankans fyrir þátt þess í góðum árangri á árinu.

Ræða stjórnarformanns Arion banka
Ársskýrsla Arion banka 2016