17. nóvember 2014
Arion banki lýkur víxlaútboði
Arion banki hf. lauk á föstudag útboði á víxlum til sex mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 480 milljónir kr. og var öllum tilboðum tekið á 5,80% flötum vöxtum. Stefnt er á að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Íslandi fyrir lok nóvembermánaðar.